miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Vinkonur í sundi


Allý mamma hennar Elísabetar Nördu tók þessa mynd af okkur í gær en við vorum að byrja á framhaldsnámskeiði í sundi - algerar drottningar.

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

alltaf að stækka



Okkur Björgvini Hauki finnst rosa gaman að sitja saman í sófanum. Svo er ég líka voðalega dugleg að liggja á maganum og reyna að fljúga.

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Arnar Eysteinn

Við mamma fórum í gær í heimsókn til Arnars Eysteins og Lísu mömmu hans. Hann er alveg svakalega lítill enda ekki nema tveggja vikna gamall. Mér fannst nú samt rétt að láta hann vita aðeins af mér og gerði eins og stóri bróðir gerir við mig; klappaði honum aðeins á kollinn.


Nokkrar myndir

Bróðir minn er mjög duglegur að knúsa mig - mér finnst það nú ekki alltaf gott.



Hér til vinstri er ég með bróður mínum og ömmu Esther í sumarbústaðnum. Þar er rosa gott að vera alveg eins og á Patró en á myndinni hér að ofan er ég í garðinum á Urðargötunni. Það er alltaf sól á Patró!


Bróðir minn er alveg svakalega sterkur og getur alveg verið með mig á háhest. Mamma hjálpaði honum bara smá...

Þessi mynd var bara tekin í gær. Ég var í heimsókn hjá nýfæddum vini mínum og mamma áttaði sig á því þar og þá að ég er ekkert smábarn lengur. Hefði nú alveg mátt fatta það fyrr...

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Grallaraspóar

Hér er ég á leikteppinu mínu....


Og með bróður mínum. Hann er mikill grallaraspói og er mjög duglegur að kenna mér ýmis grallarabrögð!

Sunddrottning


Mér finnst rosa gaman í sundi. Hér er ég með mömmu minni á sundnámskeiði.