þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Nokkrar myndir

Bróðir minn er mjög duglegur að knúsa mig - mér finnst það nú ekki alltaf gott.



Hér til vinstri er ég með bróður mínum og ömmu Esther í sumarbústaðnum. Þar er rosa gott að vera alveg eins og á Patró en á myndinni hér að ofan er ég í garðinum á Urðargötunni. Það er alltaf sól á Patró!


Bróðir minn er alveg svakalega sterkur og getur alveg verið með mig á háhest. Mamma hjálpaði honum bara smá...

Þessi mynd var bara tekin í gær. Ég var í heimsókn hjá nýfæddum vini mínum og mamma áttaði sig á því þar og þá að ég er ekkert smábarn lengur. Hefði nú alveg mátt fatta það fyrr...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home