Ég fékk rosa fínan dúkkuvagn í afmælisgjöf sem ég get meira að segja setið í sjálf. Svo finnst mér laaaaang skemmtilegast að komast í pokaskúffuna og tæta uppúr henni alla pokana, hihihi...
Loksins kom mamman sér í að setja inn nýjar myndir af mér. Ég er orðin rosalega stór og er alltaf kát og brosandi. Svo er ég farin að vera dugleg að pissa í kopp - eða allavega aðeins að prófa...